Thursday, June 11, 2009

You know that you're a real Erasmus when...

- you do things that you would never do in your hometown.

- you don't want to show your latest partypictures to anyone that's not an Erasmus.

- "spending the day at uni" means a day spent in front of your mail, msn and facebook.

- not even 30 calls from the neighbours and a visit from the police can keep you from having another big party. You just move and change neighbours!

- you came to your Erasmus-country wanting to find new friends among "the locals", but soon realised that the other Erasmuses are more fun.

- the people you just know by your own made up nicknames, such as "the hunk, the pop-guy, Hi5, barefootman..." etc are people you absolutely want to invite to your birthdayparty.

- most of your time is spent preparing for or recovering from a night out.

- you to everyone proudly present old silly songs from you home country, claiming that its a classic...without being embarrassed.

- you no longer care whether it's monday or friday - it's still partynight!

- you recognize people saying hi to you in the street thanks to the pictures you took last night.

- you refer to everything as before or after a certain Erasmus-event.

- you know that nothing is better than a night out at the erasmus pubs and clubs - although your friends complain about always going to the same places...

- you kiss anyone and anything without bothering about the consequences (good or bad).

- you blame all your bad behaviour on the fact that you're an Erasmus.

- you do a test to measure your consume of alcohol and get serioulsy worried about your health.

- you know that the time of your life is now

Tuesday, June 2, 2009

ALLTOF mikið gaman, mikið fjör til að blogga!


Það er sko alltof mikið að gera hjá okkur í skemmtanalífi og núna skóla til að blogga ;P En þar sem við byrjum í prófum á morgun þá ákvað ég að ég yrði að blogga núna til að finna mér eitthvað annað að gera en að læra! :S hehe

Heilmargt búið að gerast síðan síðast, fórum í Scala óperuna sem var æðislegt, ekkert smá flott þar inni. 

Laura vinkona átti afmæli og að sjálfsögðu var farið á djammið og því fagnað og í tilefni afmælisins þá stal ég hatti handa henni;P þessum svarta og gaf henni flösku af hvítu Ópal ;) Hún elskar það!

Mamma og Pabbi komu í 10 daga heimsókn í Maí sem var ÆÐI fórum og eyddum viku við Lago di Garda og skoðuðum bæi þar í kring. Þau voru svo í Míló í 3 daga og fengu að sjá heimilið mitt síðustu mánuðina og skólann og öll þau merkilegu minnismerki sem er að sjá hér;) Ekkert smá gott að sjá þau. Mamma og pabbi Diljár komu svo daginn áður en mínir foreldrar fóru, svo auðvita var sameiginlegur kvöldmatur (völdum of course dýrasta staðinn;P) 

Við skruppum líka í helgarferð til Verona með vinum okkar.
Gistum í hálfgerðu trailer trash vagni ;) en það var samt mjög fínt og í fyrsta skipti sem við fengum grillmat hérna úti! NAMMI ekkert smá gott, sakna grillmats mest af öllum mat! :(
Ég, Íris, Sandra og Elísabet fórum í dagsferð til Franciacorta í vínsmökkunarferð, langaði mikið að prófa þetta, en verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum, hélt að plönturnar væru hærri og þetta væri mikilfenglegra, en þrátt fyrir það var þetta æðislegur dagur í fínu veðri og góðum félagsskap:)




En núna tekur nánast ekkert nema lærdómur við:( Boring! En við förum í fyrsta prófið okkar á morgun, erum svo reyndar að spá í að skreppa til Napólí í 3-4 daga því það eru meira en 2 vikur í næsta próf? En svo erum við búnar í prófum 26.júní og þá er bara stutt í heimkomu og að þessari erasmus dvöl okkar ljúki! 

En áður en það gerist er eins gott að það verði RISA próflokadjamm svo hægt sé að kveðja alla þessa frábæru vini sem maður hefur eignast hér;)

Lofa ekki að ég skrifi meira það sem eftir er... en það er aldrei að vita;P

Ciao
Devo ora studiare! (Have to study now)

Tuesday, April 21, 2009

Ciao ciao come sta? BENISSIMO!

Já það er allt FRÁBÆRT að frétta af okkur. Vorum að byrja í skólanum aftur eftir 3 vikna frí, fórum reyndar í eitt lítið próf í byrjun apríl en þar fyrir utan var farið á mjög skemmtilegt djamm 3.apríl sem byrjaði með smá stelpupartýi heima hjá okkur:) 


Síðan var haldið á Le Banque eftir það en ferðin frá Arcobaleno (heimilið okkar) og að klúbbnum var skemmtilegust! :) Hittum ítala og canadabúa og spjölluðum við þá, Canadabúinn ákvað að skella sér með okkur á klúbbinn, á leiðinni var klifrað, teknar MARGAR myndir... Því miður misgóðar, sérstaklega vegna lélegrar myndavélar:( Louis Vuitton poki var aðalmálið og var hann tekinn með heim af djamminu! ÆÐI kvöld:)
Um páskana fór Diljá síðan til Danmerkur að hitta fjölskyldu sína og það var víst alveg æðislegt! Fékk góðan mat og svona;) hehe
Ég fór svo til Cinque terra (5 bæir) í hiking ferð með Lauru þýskri vinkonu og Jenni finnskri og 2 herbergisfélagar Jenni hittu okkur svo þar:) Þetta var frábær ferð, fengum geggjað veður og skemmtum okkur konunglega bæði að ganga og skoða:P

Cami, Sóley og Coco sitjandi á steini í Monterosso, fyrsta bænum af 5!

Sóley: útsýni yfir Vernazza bæ 2

Síðan við komum heim úr þessum geggjuðu páskaferðum er NÓG búið að vera að gera og það EKKI í skólanum;Þ Fórum á risalistasýningu sem var mjög skemmtileg og ekki skemmdi það fyrir að við fengum frítt inn;)


Diljá á MiArt sýningunni

Síðan erum við búnar að fara í brasilískt partý þar sem við fengum caipirinhas sem er kokteill Brasilíu:) Það var svaka stuð, hittum fullt af ítölum í því partýi en létum þó lítið reyna á ítölskuna okkar!
Diljá, Sóley og Laura í brasilísku fjöri:P

Brasilíski partý hópurinn!

Daginn eftir var svo annað partý, þar sem okkur var boðið í mat, mexíkóskt hjá Jenni og herbergisfélugum hennar, það var líka frábært kvöld, rosa góður matur og svaka dans stemning í hópnum er við fórum á Rolling Stone og hittum Írisi og Magga:) Okkur langaði enganveginn að fara heim þegar klúbbnum var lokað svo mikið var stuðið! ;)
Dag, Laura, Antonia, Sóley og Diljá
Svo fór ég í bíó í gær á the Wrestler, verð að segja að mér fannst hún nú bara nokkuð góð... Diljá var búin að sjá hana svo hún kom ekki með:( en hún kíkir bara með næst;)

Annars verðum við núna á næstunni að fara að snúa okkur að skólavinnu, 3 hópverkefni á döfinni:( en það þýðir samt ekki að við séum ekki að fara út í kvöld! hahahaha 

Ciao a presto! Andare far festa ;) 

Sunday, March 29, 2009

Komnar í 3 vikna "upplestrar" páskafrí;)

Diljá og Sóley fyrir utan colosseum

LOKSINS, LOKSINS BLOGG!!! :) 
Þar sem ég, Sóley er loksins komin með tölvuna mína aftur þá kemur smá blogg;) Harði diskurinn semsagt fór í henni og ég missti öll gögnin mín:( Eins og mamma sagði: Þetta kennir þér að taka backup! En núna er hún í góðu lagi og þeir uppfærðu meira að segja stýrikerfið í henni í leiðinni...
En Marsmánuður er búin að vera frekar busy mánuður, þar sem það var mikið af hópverkefnum og kynningum á þeim. Hópavinnan gengur ágætlega, en einhvernveginn endum við Diljá alltaf á því að gera mestu vinnuna...? 

12-15 mars var svo hin ofurspennandi Rómarferð:) Við komum seint á fimmtudagskvöldi og fórum beint á hostelið sem við gistum á. Freestyle hét það og var rétt hjá aðal lestarstöðinni. Við fundum ódýrasta hostelið en það var samt allt í lagi með það, eina vesenið var að það var bara 1 baðherbergi þar sem bæði klósettið og sturtan voru og ansi oft þurfti að bíða í 30 mín eftir pólskum stelpum sem fóru í sturtu 2x á dag! ARRG en við reyndum bara að vera frekar og fá að vera á undan þeim!

Diljá hjá brunni á Piazza del Popolo

VÁ Róm er ÆÐISLEG borg, mun fallegri en Míló, fyrri daginn fórum við og skoðuðum Colosseumið, uppgraftarsvæðið, Fontana di Trevi, Spænsku tröppurnar, pantheon og náðum líka að fara í mjög fallegan garð sem er þarna. Eftir 10 tíma labbdag fórum við síðan með finnsku vinkonu okkar og tveimur þýskum út að borða en entumst ekki mjög lengi og ákváðum að fara snemma heim og búa okkur undir langan dag aftur daginn eftir.

Sóley og colosseum
Eins og þið sjáið þá vorum við mjög heppnar með veður, fengum sól og blíðu og um 17stiga hita:) Dagur 2 byrjaði snemma, vöknuðum um 7 leytið þar sem við ætluðum að mæta tímanlega í vatikanið, því það er alltaf svo bilað mikið af fólki þar. Eyddum fyrripartinum í að skoða Sankti Péturs kirkjuna og vatikan safnið ásamt sistínsku kapellunni. Mjög skemmtileg upplifun þrátt fyrir að við sáum engan páfa;) hehe
Eftir þetta var haldið að skoða Piazza Navona, mjög líflegt torg með ýmsum listamönnum og svo fórum við út í Isola sem er lítil eyja úti á Tevere ánni. Þar lágum við í sólbaði í smá tíma enda blankalogn þar:Þ (Fengum smá lit eftir daginn) Á þessum tíma vorum við búnar að skoða alla stærstu ferðamannastaðina þannig við ákváðum að rölta upp á hostel og aðeins að fríska okkur við, áður en við færum að fá okkur kvöldmat. Hard Rock varð fyrir valinu um kvöldið og fengum við geggjaða borgara;) sáttar með það... Kannski orðnar pínulítið leiðar á pizzum...

Sóley og Diljá hjá Fontana di Trevi

Flugum svo aftur til Míló á sunnudeginum frekar þreyttar eftir allt þetta tröppulabb en mjög sáttar;)

Annars erum við bara búnar að vera að gera þetta sama hérna í Mílanó, labba og skoða borgina, fara á allar fríar listasýningar sem við finnum:) Fórum í fyrsta skiptinema partýið sem þýsk vinkona okkar hélt, rosa gaman sáttar með að einhver gat loksins haldið almennilegt partý! 
Síðasta föstudag fórum við síðan til Írasar, Söndru og Elísabetar, þær fengu loksins smá break frá skólanum, og elduðum með þeim kjúklingalasagna, geggjað gott. Auðvita var síðan haldið út að dansa og það alveg framundir morgun;P Svaka stuð.

Diljá og Sóley í picknick í garði í Mílanó

Síðustu daga er búið að vera ágætis veður, skelltum okkur í picknick einn daginn, en núna er því miður byrjað að rigna:( frekar fúlt þar sem við vorum að byrja í 3 vikna páskafríi, þetta er reyndar miðannarprófatímabil þessvegna er þetta svona langt. En vonandi hættir að rigna því þá ætlum við að fara í dagsferðir til nálægra borga...

Látum ekki líða svona langt á milli blogga núna:P híhí
Ciao, manchivi tutto 
Baci


Tuesday, March 3, 2009



Jæja LOKSINS setjum við eitthvað hérna inn... Vá þetta verður ritgerð það er svo margt búið að gerast síðan síðast ;) tíhí En við byrjuðum í skólanum og erum við í 4 kúrsum hérna úti (verðum nú að geta ferðast e-ð) Kúrsarnir eru mis áhugaverðir og kennarnir mis góðir í enskunni, einn t.d. það góður að við ákváðum að taka þann kúrs sem non-attending students sem þýðir basically að við þurfum að lesa bókina og fara í 100% lokapróf... Sem er í rauninni alveg ágætt þar sem það eru mörg hópaverkefni í hinum 3 kúrsunum!


THIS IS JUST IN!!! VIÐ EIGUM MIÐA Í SCALA ÓPERUNA ;) (á the rake's progress-fyrir þá þessa áhugasömu)

Annars að hinu skemmtilega... Erum búnar að fara á allskonar listasýningar, þá mest ljósmyndasýningar þar sem oftast er frítt inn á þær:P Fórum Pub crawling þar sem við kynntumst fleiri Scandinavíu búum og Þjóðverjum, jazz aperitivo var líka á dagskránni þar sem mjög skemmtilegt ítalskt jazzband var að spila á local pub hérna og svo auðvita hin ýmsu fleiri aperitivo...

Welcome Cocktail var haldinn í boði skólans, ekkert smá veglegar veitingar í boði, ýmsir smáréttir og eftirréttir og auðvita kokteill, en verið var að kynna starfsemi alþjóðadeildar skólans og of course bjóða skiptinemana 400 velkomna!

Þann 21.feb fórum við í fyrsta skipti út fyrir Mílanó en þá var haldið til Feneyja á Karnivalið þar. Ferðin hófst klukkan 6 um morguninn með því að smyrja nesti fyrir daginn en planið var að koma tilbaka 23. Fórum ásamt fleiri skiptinemum í rútu fram og tilbaka og við mælum frekar með lestinni... En rútuferðin tók 4 tíma hvora leið!!! 2 tímar með lest... 
Það var mjög flott að koma til Feneyja og upplifa þessa karnival stemningu þó svo að við höfum týnt hópnum sem við vorum með og endað tvær:/ Látum myndirnar tala sínu máli...

Þessa vikuna er búið að vera Fashion week í Mílanó ásamt því að karnivalið hér byrjaði síðustu helgi með tilheyrandi búningum og partýlátum! Við skelltum okkur í stemninguna og vorum eltar af 5 ítölum sem kunnu ENGA ensku en vildu þó ólmir tala við okkur. Við héldum að þetta væri gott tækifæri til að æfa ítölskuna okkar en flýttum okkur þó í burtu þegar setningin : 
Io, tu sex stasera? hljómaði sem þýðir einfaldlega: ég þú kynlíf í kvöld? HAHAHA versta lína sem við höfum heyrt hérna úti til þessa... :Þ

Næsta tilhlökkunarefni er Rómarferðin mikla sem við ætlum að fara í 12.mars í samfloti með 3 finnskum stelpum;) Getum varla beðið en við verðum þó að reyna að einbeita okkur að skólanum núna, því eins og í skólanum heima þá tekst kennurum alltaf að troða öllum verkefnum á sama tíma??? Hvað er málið? 

Monday, February 16, 2009


Hæ allir saman, veðrið er orðið mun betra hjá okkur hér í Milano svona um 10 gráður og sól :) thank god it stopped raining! Fengum okkur einmitt góðan göngutúr síðasta laugardag, keyptum okkur jarðaber og settumst á bekk í einum af görðunum hérna ;) very nice...

Það sem við erum búnar að gera síðan síðast... Fórum í lokapróf í ítölskunni sem gekk ágætlega að við höldum (reyndar ekki búnar að fá einkunn, ekki að hún skipti nokkru máli...:) Áttum svo frí á fimmtudag og föstudag í síðustu viku sem við eyddum í að fara að skoða kirkjugarðinn, risastór og flottur og skoða design búðir þar í kring, fórum svo á Emiliönu Torrini tónleika um kvöldið þar sem Lay Low hitaði upp og þeir voru ÆÐI, dáldið mikið af Íslendingum þar inni en fyndið að heyra allt gargið á íslensku:)

Eins og þið sjáið þá náðum við ekkert gífurlega góðum myndum þarna, því miður:( 

Helginni var svo eytt í að sötra hvítvín og halda movienight, horfðum á The kite runner, mjög góð mynd. Á laugardeginum sem var Valentínusardagur og er mjög stór hér þá fórum við með Írisi, Söndru og Elísabetu og krökkunum sem eru með þeim í IED á valentínusardjamm, það var mjög fínt, aperitivo bæði venjulegt og sushi og open wine bar:) 
Sóley smakkaði sushi í fyrsta skipti og neibb það var EKKI GOTT! Ýmsir hjartalaga eftirréttir voru einnig í boði og við stelpurnar fengum líka rósir ;) 

Annars erum við duglegar að fara í göngutúra og sunnudeginum var eytt í að kanna nágrennið, sem við höfðum ekki enn gert :P og við komumst að því að það er nákvæmlega EKKI neitt hérna í kring... Algjört úthverfi! En þá var bara að vera listrænn og taka mynd af ekki neinu ;)

Í dag var síðan fyrsti skóladagurinn okkar, þurftum að vakna eldsnemma í fyrsta sinn í langan tíma :( úff svo nice að geta sofið aðeins lengur og við fórum í einn tíma sem var management consulting. Hann virkar mjög spennandi og það er bara vonandi að hinir verði það líka ;) 

Allar myndirnar koma á facebook ;) og endilega kommentið á síðuna okkar, ef þið kunnið það ekki þá er það: skrifa comment, fara svo í name/url og skrifa nafnið ykkar, þarf ekki að skrifa neitt í url og staðfesta ;) 

Ciao a presto...

Thursday, February 5, 2009

God son and Hurricane!


Fabulous nýju skórnir hennar Sóleyjar;)

Afsakið bloggleysi en það er nóg að gera hjá okkur í Milano:)
Síðasta laugardag fórum við í verslunar
leiðangur ( í síðasta skipti í bili, VIÐ LOFUM:)) á Buenos Aires sem er stór verlsunargata mjög nálægt Duomo (miðum allt útfrá því) hehe Þar keypti Sóley sér skó, bol, tösku og Diljá 2 boli góð kaup á útsölunum... Um kvöldið fórum við út að dansa með Söndru Dís á Le Banque þar sem var international night, staðurinn var pakkaður af allskonar fólki og ekkert smá fínn staður, fullt af ríkum mömmu og pabba krökkum! 
Myndir eru komnar inn á facebook!

Myndir frá hönnunarsýningunni:





 





Þessa vikuna erum við búnar að vera í skólanum að læra meiri ítölsku, og fara á aperitivo 2 kvöld, í kvöld hittum við buddyinn hennar Sóleyjar: Gabriele í fyrsta skipti, en hann tók sér smá frí frá prófalestri til a
ð hitta okkur.  Virtist mjög fínn strákur sem er ekki feiminn að gera grín að ítölum:)  Veðrið hérna er ekki búið að vera neitt gífurlega gott, snjóaði á mánudaginn eða sama dag og við stóðum í 2 klukkutíma utandyra í von um að geta keypt miða á stórleikinn: Inter vs. Manchester United! En þessir elskulegu Ítalir sem unnu í bankanum sem miðarnir voru seldir, hleyptu ekki neinum inn þessa 2 tíma sem við biðum og gáfumst við því upp og fórum miðalausar heim, blautar og kaldar :( ARRG Þrátt fyrir leiðinlegt veður mikla rigningu og smá rok þá þrömmum við um allan bæ, förum í bókabúðir að browsa, fáum okkur crépes og fórum á mjög skemmtilega hönnunarsamkeppnis sýningu á vegum United Colors of Benetton, þar sem ungir hönnuðir eru í keppni um að hanna nýtt útibú verlsunarinnar bæði innanhús og utan.

P.s. God son og Hurricane er tilvitnun í drykkina sem við drukkum í kvöld... NAMM!
Sofia, Diljá, Sóley og Inga
Aperitivo á Old Fashion.
Maikku, Anthony og Feng á Old Fashion